Hvenær opnið þið fyrir pantanir fram í tímann?
Hið almenna er að við tökum pantanir allt að tvo mánuði fram í tímann.
Það eru allir básar pantaðir þann dag sem ég vil vera. Er einhver möguleiki á að bás losni þann dag?
Það geta alltaf komið fyrir forföll og einnig getur skipulag sölubása breyst hjá okkur. Það er því alltaf möguleiki. Ef þú vilt komast á biðlista þá getur þú smellt á viðkomandi dagsetningu í básapöntunarferlinu og þá getur þú skráð netfang þitt á biðlista. Sumir lenda í því að tölvupósturinn frá okkur lendir í ruslpóstsíunni þeirra. Það er einnig hægt að gerast vinur okkar á Facebook. Kolaportið á Facebook
Hvað eru básarnir stórir?
Básarnir eru 2,45m x 2,45m = 6 fermetrar. Borðin eru 2.20m x 80cm. Algeng stærð á fataslá er 1,4m á hæð og 1,5m á lengd.
Hvað kem ég mörgum fataslám og eða borðum í básinn?
Að okkar mati komast mest 3 aukahlutir (borð/slár) í hvern bás.