Reglur
Einfaldar reglur og ábendingar til söluaðila;
1. Öll sala skal fara fram innan leigðs sölusvæðis. Ábending: Borð og slár má leigja hjá Kolaportinu en aðilum er bent á að hægt er að koma með létta skápa eða standa svo fremi að slíkt rúmast innan sölusvæðis. Kollur eða stóll kemur sér einnig vel til hvíldar.
2. Öll sala matvæla er óheimil nema með skriflegu leyfi Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur og þá aðeins í matvælamarkaði Kolaportsins. Athugið að leyfið er staðbundið. Þó svo að söluaðili hafi framleiðslu- og/eða söluleyfi þá þarf samt sem áður að sækja um staðbundið leyfi frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur.
3. Götur Kolaportsins (gangar) eru til að auðvelda aðgengi gesta um svæðið að sölubásum og því mikilvægt að taka tillit til gesta og annara söluaðila með því að stífla ekki umferð um þær. Ábending: Eldvarnareftirlitið krefst einnig að þessi regla sé virt í öryggisskyni.
4. Öll meðferð elds er stranglega bönnuð. Bannað er að kveikja á kertum eða luktum af öllu tagi. Reykingabann er í Kolaportinu eins og öðrum opinberum stöðum. Ábending: Verum öll vakandi fyrir öryggi hvers annars!
5. Söluaðili skal leitast við að valda ekki gestum eða öðrum söluaðilum óþarfa ónæði eða truflun. Ábending: Gott skap og bros gefur lífinu gildi. Gæti líka aukið söluna heilmikið!
6. Vara sem gefur frá sé hljóð eða ilm/lykt eða þarf sérmeðferð skal vera þannig að ekki valdi öðrum ama. Ábending; Sér sölusvæði er fyrir matvæli. Ef þú ert í vafa varðandi þetta atriði leitaðu ráða hjá starfsfólki Kolaports sem er boðið og búið að finna lausnir við hæfi.
7. Rekstraraðilar Kolaportsins áskilja sér rétt til að stöðva sölu sé ekki farið að reglum. Spurðu starfsfólk Kolaportsins ef þú ert í minnsta vafa um þessar reglur. Innan Kolaportsins gilda almennar reglur um velsæmi og hegðun. Ábending: Öll meðferð áfengis er bönnuð sem og reykingar. Farið eftir athugasemdum og leiðbeiningum starfsfólks Kolaportsins.
8. Einungis er heimilt að neyta matar í Kaffi Porti sem er keyptur þar.
Ábending; Í Kaffi Porti er gott úrval af veitingum - nýttu þér þjónustuna.
9. Söluaðili ber ábyrgð á vörum sínum að öllu leyti og ber sjálfur kostnað af tryggingum, flutningi til og frá sölustað og allan annan kostnað sem söluaðili stofnar til. Geymi söluaðili vörur sínar milli opnunardaga eru þær alfarið á ábyrgð hans. Ábending: Lokaðu af sölusvæði með t.d. ábreiðum. Taktu verðmætari hluti gjarnan með þér í lok hvers söludags.
10. Vörumóttaka er vestanmegin í húsinu og er opin frá kl 9.00 til 10:30 laugardaga og sunnudaga. Seljendur skulu vera farnir úr húsinu fyrir kl.18.00. Ábending: Bretti og viðeigandi flutningstæki eru til staðar við flutninga innanhúss. Gangar skulu auðir við opnun kl.11.00
Einkunnarorð okkar eru: þjónusta – lipurð – kurteisi.
Kolaportið | Tryggvagötu 19 | 101 Reykjavík | Sími 562 5030 | kolaportid@kolaportid.is